Ég er ađ fara á Ţjóđhátíđ í Eyjum!!! :D
Annars ætlaði ég bara að hafa þetta stutt blogg.. Óska henni Ásdísi minni innilega til hamingju með Íslandsmetið í spjóti. Hún kastaði 59,80 sem er bæting um rúma 2 metra :D Frábært hjá þér Ásdís mín og ég veit að þú átt eftir að standa þig ótrúlega vel á Ólympíuleikunum :D Ég sit spennt fyrir framan Eurosport útá Mallorca með sólarolíuna í annarri og kokteilinn í hinni :D
MÍ næstu helgi og þar er sko stefnt á BÆTINGU! undir 26,80 í 200m, undir 61,41 í 400m og undir 13,28 í 100m :D
Kv. Íris Þórs :D
Seint blogga sumir en blogga ţó... :)
Jæja.. þá hef ég loksins ákveðið að rífa mig upp af rassgatinu og blogga. Fullt búið að gerast síðan ég bloggaði seinast.
Kláraði 3 árið mitt í MH og á núna eftir 11 einingar í stúdent
Búin að æfa á fullu, datt í ofþjálfun um páskana, púlsinn fór í rugl, alltaf veik, hvíldi mikið á þessum tíma og er svo að byggja þetta upp núna. Mér gengur nokkuð vel þrátt fyrir allt, keppti á Gautaborgarleikunum núna um daginn þar sem ég keppti í 100m, 200m og 300 grind og var nokkuð nálægt mínu besta.
Er að vinna mitt annað sumar hjá Toyota og er búin að vera að flakka á milli Nýrra bíla, Standsetningar nýrra bíla (verkstæði) og skiptiborðs. Ekkert smá skemmtilegt fyrirtæki :)
Annars er lítið annað að frétta, búin að vera frekar dugleg undanfarið að fara út á lífið en hef ákveðið að láta það eiga sig núna framyfir MÍ þar sem planið er að fara til Eyja um Verslunarmannahelgi og beint eftir það í útskriftarferð til Mallorca með Lindu & Thelmu og kæróum þeirra :D Gaman að segja frá því að ég vaaar að redda fari heim frá Eyjum á mánudeginum, svoldið stress þar sem ég fer út á miðvikudeginum, en nú get ég slakað aðeins á (nema reyndar að það verði brjálað veður og ég festist þarna :/ shiii)
Vá það er svo margt sem er að poppa inn í hausinn á mér að blogga um að ég veit ekki hvar ég á að byrja.....
... Var að fá nýja gaddaskó, sprett - Nike, geggjaðir. Hlakka til að bæta mig í þeim!!!
... Íris Anna er að fara í Lýðháskóla til Dk núna um miðjan ágúst sem þýðir að í fyrsta skiptið í 7 ÁR er ég ekki að fara að hitta hana á hverjum degi. Hún er núna úti á HM með Svenna og Helgu Margréti, fer beint þaðan í útskriftarferðina sína og eftir að hún kemur heim þaðan höfum við tæpar 2 vikur þangað til ég fer út til Mallorca. :/ Planið er nú samt að kíkja í heimsókn til hennar einhverntíma í haust, sjá hvort þetta er eitthvað sem mig langar að gera eftir jól og var ég að pæla að draga Lindu með mér í verslunarferð í leiðinni. Þetta yrði þá 4. utanlandsferðin þetta árið (5. ef maður tekur Vestmannaeyjar með ;))
... Bikar var að klárast um helgina, vorum nú bara með hálft lið þar sem Svenni, Helga og Íris voru látin hvíla. Vonum bara að allir verði heilir eftir ár svo við getum nú tekið Bikarinn á næsta ári. Ég er alveg handviss um það að Stefanía mín verður farin að hlaupa niðrá 56 aftur í 400m, Íris Anna og Arndís eiga eftir að berjast um Íslandsmetin í lengri hlaupunum, ég verð orðin töluvert hraðari, komin undir 59 í 400m, undir 26,00 í 200m, undir 13,0 í 100m og undir 65,0 í 400grind, Bjarni, Svenni, Ásdís, og allir hinir eiga eftir að vera í þvílíkt góðu formi og við eigum eftir að taka þennan Bikar af FH ingunum :) Hvernig líst ykkur á það FHingar... :D
... Langar aðeins að tala um það hvað mig langar ROSALEGA mikið að komast í landsliðið!!! Þetta er búið að vera markmið í nokkuð mörg ár núna, og í vetur setti ég mér það markmið að komast í liðið sumarið 2009. Ég stend við það, ÆTLA mér að komast á Smáþjóðaleikana, langar svo óóótrúlega mikið að keppa fyrir Ísland! Hef verið mikið að pæla í þessu undanfarið, það hefði ekkert vantað mikið uppá að ég hefði komist á Evrópubikar í 4x400m, þar sem markmiðið mitt var undir 60 sek í 400m og í fyrrasumar átti ég besta hlaupið mitt á Vormóti ÍR. Ég veit það er ekki hægt að segja svona, að ég hefði komist hefði ég verið í lagi því það eru svo margir sem voru í sömu sporum og ég, en þetta vekur samt sem áður mikla von hjá mér. Arndís María komst á tímanum 59,20 (var það ekki eitthvað svoleiðis og til hamingju btw. :)) og nú ÆTLA ég að komast í landsliðið, ég VEIT ég get það.. ég ætla mér .. ég skal.. !!! Tek vel á því í vetur, ætla að byggja mig upp líkamlega og ekki síður ANDLEGA, því það er kannski eitthvað sem vantar hjá mér, en ég verð nú samt að segja það að ég er búin að taka mjög miklum framförum í því á seinustu tveimur árum.
Hef þetta ekki lengra núna. Ég lofa engu með áframhaldandi blogg.. fer bara eftir stuði hvort ég nenni að blogga áfram.
~*Íris Þórs*~
Ready í rúst á bikar?

Vil byrja á því að óska Helgu minni til hamingju með þrautina.. gekk svona líka prýðilega.. bætti metið og stóð sig að mínu mati mjög vel..
- 60gr: 8,90
- Hástökk: 1,67
- Kúla: ca. 13,2
- Langstökk: 5,54 minnir mig
- 800m: 2:20
Ég og Björg á Bikar í fyrra..

Svo er bikar næstu helgi.. Fer að öllum líkindum bara í 4x400m.. ætla mér að splitta undir 60 sek ef ég verð ekki í startinu.. een einhvernveginn hef ég á tilfinningunni að ég verði sett á fyrsta sprett..
En það er fínt vegna þess að ég get allt.. og ég er best.. 
Ég og Steffý mín á Bikar
En annars hef ég mjög lítið að segja.. ekkert að frétta.. eeen það á vonandi allt eftir að breytast á næstu helgum...
u know why Flottustu leggirnir og flottustu rassarnir..
right guys?Hef þetta ekki lengra.. Planið er að á föstudaginn gerum við Fjörmenningar eitthvað saman.. kíkjum í pottinn í Berjarimann... og svo á sunnudaginn kökuboð.. Ég pant koma með gulrótaköku.. bý til geeeeggjaða gulrótaköku..
~*Íris Þórs*~
...Always look at the bright side of life...
Ef ég byrja á MÍ 15-22 ára. Keppti í 60m, 60m úrslitum, 200m, 400m og 4x400m og brilleraði:
- 60m: 8,46 (átti 8,54)
- 60m: 8,45
- 200m: 26,93 (átti 27,40i og 26,91 úti)
- 400m: 61,41 (átti 61,80 frá því á Rvk Int.n og 62,04 úti)
- 4x400m: Kláraði mig algjörlega og var þess vegna sátt.
MÍ fullorðinna:
- 60m: 8,49 (svo sem ágætt)
- 400m: 63,93 (HRYLLINGUR - 3 SEKÚNDUM FRÁ MARKMIÐI)
- 200m: 27,09 (ætlaði undir 26,80 og inn í úrslit - gekk hvorugt)
- 4x400m: Fer í það á eftir .. og ég ætla að klára það með stíl.. til að bæta aðeins fyrir helgina. Vonandi kemst maður á pall í þokkabót, því það myndi bæta egóið smá.
- 100m: Undir 13.00!
- 200m: Undir 26.40!
- 400m: Undir 60.00!!!!!
- 300gr: Undir 48.00!
- 400gr: Undir 68.00!
En yfir í annað.........
~31 dagur í Tenerife~
Get ekki beðið.. þetta verður sjúklega gaman.. Gaman líka að sjá hvað það eru margir að koma.. Fjölnir, Ármann, ÍR og nokkrir Blikar sem voru að bætast við... :D
Annars bara .. þið sem hafið nennt að lesa þetta blogg .. þið fáið hrós.. ekkert mjög skemmtilegt.. en maður þarf að koma þessu út úr systeminu.. og koma markmiðunum out in the open. Endilega skrifið ykkar markmið í comments.. langar að sjá hvað aðrir ætla sér að gera á næstunni.. :D
Hef þetta ekki lengra í sinni.. ætla að drífa mig að ýta á "vista" því ég er að gera þetta sama blogg í annað skiptið.. ekki skemmtilegt.. og tekur mikla þolinmæði.. :P En ég er auðvitað svo þolinmóð að þetta er allt í lagi ;)
~*Íris Þórs*~
2 dagar í ađ ţurfa ađ borga allt sjálf :/
Annars ganga æfingarnar ekkert alltof vel.. Fékk eitthvað í kálfann þannig að ég er búin að taka því rólega.. bara í þreki á þrekhjólinu.. maga og bakæfingar og svoleiðis.. Prófaði svo að fara út að skokka í gærkvöldi í 10 mínútur og ég fann ekkert í kálfanum.. bara alveg hrikalega þreytt í lungunum .. alveg ótrúlegt hvað formið er fljótt að fara
En þá er komið að máli málanna.. hef svona næstum því ákveðið að einbeita mér meira að lengri grindinni heldur en 200 og 400.. en að sjálfsögðu þá keppi ég í öllu.. Ætla mér undir 48sek í 300gr næsta sumar og allavega undir 68 sek í 400gr sem ég veit að er ekki mjög háleitt markmið en þar sem ég hef aldrei keppt í 400gr áður þá set ég markið lágt og hækka það þá frekar bara meira..
Yfir í áramótin.. hvað ætlar fólk að gera?!? Er stemmari fyrir Broadway? Eða jafnvel frjálsíþróttapartýi? Eða á maður kannski bara að flýja borgina og fara til Akureyrar í fjölskyldupartý?
Eeen hef þetta ekki mikið lengra.. Vil endilega biðja fólk um að staldra aðeins við eftir mótið 29. des því ég ætla að baka sjúklega góða súkkulaðiköku sem verður í boði eftir "ára"mótið og ljúka jólaátinu með stæl

Góðar minningar frá því ég var á Akureyri seinast.. Ég og Steini frændi á Café Akureyri
~*Íris Þórs*~
Klikkuđ ćfing og ég massađi hana :D
- 8x200m-45sek skokk-30m 90%-45sek skokk (38sek)
- 5mín skokk
- 1x100m (15 sek) 90 sek skokk
- 1x200m (37 sek) 90 sek skokk
- 2x100m (14,5 sek) 90 sek skokk
- 1x200m (36 sek) 90 sek skokk
- 1x100m (14,5 sek)
- 10 mín skokk
- 1x400m (80 sek) 2 mín skokk
- 1x300m (60 sek) 2 mín skokk
- 2x200m (34-33 sek) 2 mín skokk
- 1x100m (14,5 sek) 2 mín skokk
- 4x60m á 90% - 90 sek hvíld
Já þetta var sem sagt æfingin mín í dag.. Æfingin sem ég var búin að kvíða fyrir alla vikuna.. og ég gat hana.. :D Fæ klárlega klapp á bakið fyrir það :D Fannst ég bara ótrúlega létt og kom sjálfri mér bara nokkuð á óvart.. formið er farið að segja til sín.. og ég er að elska það

Yfir í prófin þá ganga þau bara nokkuð vel.. reyndar orðin latari en ég hef verið.. en kemur það ekki hjá öllum..? Búin með 3 próf og á eftir tvö og ætla svoleiðis að massa þau...

Hehe langar svo að segja ykkur frá smá leik sem ég var í með litlu frænku minni áðan.. sem er 5 ára held ég.. :D Heitir steluþjófaleikurinn.. og fer þannig fram að hún leggst uppí rúm og þykist vera sofandi.. ég læðist inn með vasaljós og stel einhverjum hlut í herberginu og svo vaknar hún þegar ég er farin út............... og ég spyr "hvað svo"... já og svo bara skiptum við ég verð þjófurinn og svo getur Atli verið þjófurinn... haha .. tilgangslausasti leikur sem til er.. :D En gaman að því hvað hún elskar hann og hefur mikinn metnað fyrir því að skipuleggja allt og skipa öllum fyrir og vera frekja.. alveg æðislegt

Hvar verður fólk annars að vinna um jólin?? Ætli ég verði ekki sitt á hvað í Toyota og í Gullhömrum.. Fékk þá ágætisvinnu hjá Toyota að keyra út jólagjafir Lexus (umboð Lexus er þarna líka og í eigu eiganda Toyota). Lexus semsagt gerir svo vel við sína viðskiptavini að þeir gefa þeim jólagjafir.. í sumar létu þeir keyra út eitthvað sérkryddað-rauðvínslegið-lambalæri.. og buðu þeim á golfmót og ég veit ekki hvað og hvað.. fyrir alla sem hafa keypt nýjan bíl á árinu..
ekki leiðinlegt..


~*Íris Þórs*~
~Vika í prófin~
Og þetta er líka alltaf svo fljótt að líða.. byrja á þriðjudegi og búin á fimmtudeginum 13. des. Svo um kvöldið er það Laddasýningin með fjölskyldunni og maður ekkert lítið spenntur fyrir það 
Eeen ég fór í leikhús í gærkvöldi með Írisi Önnu :D Fórum að sjá Hamskiptin í Þjóðleikhúsinu.. að mínu mati ágætt leikrit.. fyndið á köflum og ótrúlega vel leikið.. samt svoldið súrt og óskiljanlegt.. en maður reynir nú að líta á það með menningarlegum augum

En yfir í æfingarnar seinustu vikuna.. Búin að vera frekar massíf vika. Byrjuðum á mánudeginum á fáránlega erfiðri æfingu sem mig langar aðeins að deila með ykkur
- Snörun x10, Stífur hamur x8, standandi róður x10, niðursig x10 og hnébeygjur með áherslu x20.... allt með 20 kg stöng, 4 hringir, aldrei að stoppa á milli.. í mesta lagi í 15 sek. fokk þetta kom svitakirtlunum í gang.. :D
- 4 smáæfingar.. hnélyfta, fótkast með hoppi, framdrag í handlegu og 2x500m róður í róðurvélinni á tíma. 1:54 og 1:52.
- 8x150m á 70%
Hinar æfingarnar voru bara fínar.. hef verið að fíla mig mjög vel í hlaupunum..
mikið að hugsa um góðar hendur og hæl yfir hné. Það er svo gaman þegar manni gengur vel á æfingum.. gefur manni svo góða von fyrir næsta sumar. Ég get ekki beðið eftir að fara að keppa.. Finnst bara svo leiðinlegt hvað maður keppir lítið í frjálsum á Íslandi... bara í febrúar og svo á sumrin.. vildi að maður gæti verið að keppa allt árið.. því það má ekkert fara úrskeiðis í febrúar og á sumrin þá er allt ónýtt og maður þarf að bíða í marga mánuði til að fá tækifæri til að keppa aftur. Sem betur fer hef ég verið nokkuð heppin undanfarin ár.En ætla að koma með smá pirring aftur.. :/ Þoli ekki þegar maður er að spjalla við eitthvað fólk og segja frá einhverju merkilegu.. eða ekkert endilega svo merkilegu og maður fær ekki svar. Kannisti við þetta? Þetta er óþolandi.. að fólk geti ekki bara svarað manni. Allavega hef ég vanið mig á það að svara fólk þegar það er að tala.. og reyna að láta það ekki verða vandræðalegt.
Jæja.. ætla að halda áfram að lesa "Their eyes were watching god" fyrir munnlegt í ensku á fimmtudag..
sjáum til hvernig það fer.. Ohh.. þurfti að fara smá frá blogginu og hjálpa pabba með sófastólinn niðrí bílskúr og á leiðinni upp aftur datt ég í stiganum og rak hnéð í.. kemur kannski ekki á óvart.. en ég er bara að fá þennan myndarlega marblett.. leiðindi!

Jæja.. hef þetta ekki lengra í dag..
~*Íris Þórs*~
Smá pirringur í gangi....!
En ákvað að blogga smá til að reyna að koma mér í betra stuð.. :) Er í fríi á æfingu í dag sem er mjög hentugt því þá get ég unnið í staðinn.. Er semsagt að fara að þjóna á JÓLAHLAÐBORÐI.. :) í Gullhömrum í kvöld.. með Þóru Kristínu.. verður svaka stuð hjá okkur með jólalögin í botni að skreyta salinn ..

Aðeins um vikuna æfingalega séð..
Þessi massaæfing á þriðjudaginn.. geðveikt gott eftir á .. ;)
Pínkuponsu æfing á miðvikudaginn.. bara nokkur sett af clean og svo 12 sprettir í stúkunni á gömlu höllinni með góðri hvíld á milli setta (4x3xsprettir í hverja tröppu).
Æfingin í gær var þvílíkt skemmtileg.. tækni í grind.. Ég hef ákveðið að keppa í 300gr á Ullevi í sumar þannig að þá fæ ég að taka smá tækni meðfram því að vera að hlaupa eins og brjálæðingur í vetur..
En langaði að deila með ykkur hvað mér finnst geðveikt gott þegar fólk er að gefa mér góð ráð varðandi frjálsar.. mjög gagnlegt að heyra frá Stebba Má á þriðjudaginn að ég þyrfti að anda dýpra.. því ég anda svo grunnt :) Vil alveg endilega að þið bendið mér á hvað sem er ef þið sjáið eitthvað sem þið viljið setja út á.. no hard feelings..
En annað.. vil endilega fá að segja markmiðið mitt fyrir næsta sumar hérna.. :D Taka mér Silju til fyrirmyndar ..
----- Undir 60.0 í 400m -----
Ég ætla mér að kýla á þetta.. og bomba undir 60 sekúndurnar.. Ég ÆTLA.. SKAL .. GET og VIL!!!

Enda þetta á mynd af okkur Lindu minni frá Dk í sumar..

En ekki lengra í dag.. verð víst aðeins að kíkja í bók til að fá ekki samviskubit..
Hafið það gott um helgina..
~*Íris Þórs*~
Hvađ segiđi.. rífa upp ţetta blogg... ?
Svoldið langt síðan ég bloggaði seinast.. hef einfaldlega ekki nennt því .. en þar sem ég náði að læra fyrir æfingu í dag.. í fyrsta skiptið í langan tíma þá hef ég loksins rólegt kvöld.. horfa á Dreamgirls og svoleiðis.. Langar aðeins að segja ykkur frá því.. hef verið að bera hana svoldið við Hairspray.. og Hairspray er miklu miklu skemmtilegri.. flottari lög.. og ekkert endalaust væl uppá háa C-i :D
En yfir í æfinguna mína í dag.. Tók 2000m interval í tveimur settum og mátti ráða hvernig ég hlypi sprettina.. bara að þeir væru á milli 150m og 300m.. fyrra settið var (150-250-200-250-150) og seinna settið (200-300-200-150-150). Í fyrra settinu dó ég gjörsamlega.. slefaði upp í 70% og var alveg búin á því.. en var betri í seinna settinu og þetta tókst.. :)
Er orðin miklu betri af beinhimnubólgunni núna.. :D Ekkert smá glöð.. Hvíldin í gær held ég hafi gert gæfumuninn.. Vil líka meina að legghlífarnar og klakarnir hafi sagt sitt.. nú er það bara að halda því áfram og vona það besta..

Jæja.. ætla mér að halda þessu gangandi.. sorry hvað þetta var leiðinlegt blogg.. er aðeins dottin úr æfingu.. ;)
...Later...
~*Íris Þórs*~
~Ekki á morgun heldur hinn~
2 DAGAR!!! Linda trúiru þessu!! Það er svo stutt síðan það voru 13 helgar.. :/ Eftir tvo daga verðum við Linda semsagt í Danmörku .. working our asses off í búðunum.. kíkjandi í tívolí og á frjálsíþróttavellinum í Österbro að tjékka gæjana.. :D það er allavega planið hjá Lindu.. á meðan ég tek æfingar.. :D
Veðurspáin er bara nokkuð góð.. 18-20 stiga hiti.. einhver sól :) Ég bið allavega ekki um meira.. :) Ég er alveg á því að í dag, 15. ágúst var fyrsti vetrardagurinn.. fór út í þennan skítakulda í morgun.. er ekki að fíla þetta get ég sagt ykkur!

En yfir í annað.. Ég skiiiil ekki hvernig mér tekst að ná mér í þessa helv**** flensu í annað skiptið í sumar!! Ég er oftar veik en Linda !! :/ Ég er svona ekki nógu veik til að vera heima sofandi .. og ekki nógu hress til að mæta á æfingar.. þetta er óþolandi!!! Ég sem ætlaði að vera svo fersk á æfingum í vikunni og bæta upp æfingamissinn úti í Danmörku.. en ég verð víst bara að vera dugleg þar.. því MÍ 15-22 er á næsta leyti.. :)
Talandi um það.. eru ekki öll lið að fara að gista á Laugum..? Og hvernig fara lið.. með rútu eða flugi.. eða kannski á einkabílum? Við erum allavega það heppin að fara með flugi til Akureyrar og rútu þaðan.. :D Gulla fær hrós fyrir að hafa reddað því.. :D

Annars langar mig aðeins að segja frá Bikarkeppninni. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég kemst í liðið utanhúss og fyrsta skiptið á ævinni sem ég kemst í einstaklingsgrein á Bikar.. Ekkert smá stolt þó svo að ég hafi endað 6. í 100 metrunum. Er samt þokkalega sátt með það hlaup þar sem ég bætti mig... úr 13,46 í 13,28 og það með 1.6 í mótvind.. :D Boðhlaupin voru bæði frekar slöpp og þurfum við stelpurnar aðeins að fara að bæta hraðann hjá okkur.. Stelpur eruð þið til í það ;)
Bikarpartýið var svo seinna um kvöldið og var alveg þokkalega fjölmennt þar.. :D Þessir ÍR-ingar stóðu nú ekki við orð sín heldur mættu "eldhress" með einhvern derring um tónlistina.. Annars fullt af slúðri frá þessu kvöldi sem ég bíð spennt eftir að sjá á ÍR-slúðrinu þar sem ég vil ekki bera ábyrgð á því að opinbera það.. :P En allavega.. Takk æðislega fyrir gott kvöld.. :* Er svo ekki bara málið að fara í sumarbústaðaferð í september..? ;) Haaa Íris ;)

En jæja.. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag.. Við Íris Anna ætlum að kíkja niðrá Kópavogsvöll í kvöld og kíkja á 800m hlaupið hjá Blikunum.. sagan segir að það verði klikkað hlaup! Hafið það gott á klakanum um helgina ;) Kveð frá Toyota ;)
~*Íris Þórs*~